Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson Ímyndið ykkur forseta sem býr yfir visku fortíðar en sér fyrir framtíðina. Halla Hrund er kona vísinda sem mun leiða sjálfbæra nýsköpun og tryggja að við nýtum auðlindir Íslands á vistvænan hátt. Sem háskólakennari hvetur hún ungt fólk til að taka virkan þátt í að móta landið sitt. Skoðun 1.6.2024 18:32
Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Mér finnst það góð pæling, að tala ekki bara um hvað maður hyggist kjósa heldur einnig hvers vegna. Aðeins snúnara í forsetakosningum vegna þess að embættið er ekki jafn pólitískt og t.d. Alþingi. Skoðun 1.6.2024 18:07
Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Fyrir nokkrum mánuðum hringdi síminn á skrítnum tíma, eins og svo oft áður. Áður en ég leit á skjáinn vissi ég auðvitað að þetta væri Janus vinur minn. Það hringir enginn annar í mig á þeim tímum. Skoðun 1.6.2024 14:34
Svona velur þú þér forseta í dag Nú kýs þjóðin sér forseta og ég þykist vita að mörg ykkar séu enn á báðum áttum með hvern frambjóðendanna þið ætlið að kjósa. Skoðun 1.6.2024 06:30
Hatur og fyrirlitning Undanfarna daga hefur Þjóðleikhús fáránleikans sett upp einhverja furðulegustu sýningu í manna minnum og er þó enginn hörgull á sambærilegum sýningum í sögu þessarar andlega löskuðu þjóðar. Skoðun 31.5.2024 21:31
Samherjar Nú göngum við íslendingar að kjörklefunum. Það er stór hópur sem hefur ákveðið að gefa kost á sér til forseta Íslands og öll hafa þau ýmislegt til brunns að bera, sama hvernig maður lítur á það. Það hefur orðið ljóst að slagurinn um atkvæði er orðinn ansi hávær og ganga mætti svo langt að segja að hann sé orðinn að leðjuslag. Skoðun 31.5.2024 21:00
Að hitta hetjuna sína Hæfileikar, einir og sér, leiða mann ekki frá einum stað til annars. Hæfileikar stýra því ekki hvernig maður kemur fram við fólk, dýr og náttúru, þeir hafa engan siðferðislegan áttavita og greiða manni afar fáar götur í samskiptum og flóknum álitamálum. Skoðun 31.5.2024 19:31
Einstakt tækifæri Hvað gerir forseti Íslands? Hvers vegna þurfum við forseta? Þetta eru spurningar sem hafa heyrst núna þegar við erum að kjósa okkur nýjan forseta. Starf forseta Íslands er eitt af þessum störfum, þar sem sá sem því gegnir, getur mótað starfið því það býður upp á mikinn sveigjanleika og fjölbreytta nálgun. Skoðun 31.5.2024 19:00
Um afrekskonuna Katrínu Steinunn Jóhannesdóttir skrifar stuttan pistil um afrek Katrínar Jakobsdóttur. Skoðun 31.5.2024 18:01
Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Ísland hefur alltaf verið mér gott og haft nóg fyrir mig að gera. Ég er mjög þakklátur fyrir að fá að telja mig til þessarar merkilegu þjóðar. Skoðun 31.5.2024 17:15
Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Á morgun 1. júní verður kosið til embættis forseta Íslands, þar sem við munum kjósa sjöunda forseta lýðveldisins. Í þessu samhengi skiptir máli að við unga fólkið skilum okkur á kjörstað og nýtum lýðræðislegan kosningarétt okkar. Við sem erum að kjósa í fyrsta skiptið fáum loksins að nýta kosningaréttinn, sem er mikið meira en bara réttur. Hann er tækifæri okkar til að láta rödd okkar heyrast og hafa áhrif á samfélagið. Skoðun 31.5.2024 17:01
Með ósk um velgengni, Halla Hrund Þessi kosningabarátta hefur verið áhugaverð. Tími yfirvegaðra stefnuyfirlýsinga er löngu liðinn og við hefur tekið samfelldur kliður á samfélagsmiðlum sem fjölmiðlar sleikja upp í misjöfnum tilgangi. Stundum hefur þetta tekið á sig mynd hatrammra skothríða þar sem orðfæri hefur gengið fram af viðkvæmu og grandvöru fólki. Skoðun 31.5.2024 16:46
Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Það er mikilvægt að forseti Íslands sé óháður valdastéttum og pólitískum flokkum. Forseti má ekki þurfa að taka afstöðu til máls sem hann hefur áður stutt eða lagt fram. Skoðun 31.5.2024 15:17
Arnar Þór Jónsson Eflaust varpa flestir öndinni léttar þegar þeirri skýjareið og draumarugli lýkur, sem einkennt hefur umræðuna um forsetakosningar undanfarið. Engan skal undra að þjóðinni líði eins og húðsneyptum hundi og fái aulahroll, þegar hún heyrir fjölmiðlafólk, misgáfaða álitsgjafa og suma frambjóðendur ræða um sig, eins og hún sjálf sé mállaus óviti er þurfi að hugsa fyrir. Skoðun 31.5.2024 15:00
Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Undanfarna daga hefur þeirri áhugaverðu söguskýringu verið haldið á lofti að það sé ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur eitthvað sérstaklega að þakka að fjöldinn allur af Palestínufólki hafi komist undan þjóðarmorði á Gaza og hingað til Íslands, þar sem fólkið er með dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Dvalarleyfi sem þau eiga einfaldlega rétt á samkvæmt lögum og er engum að "þakka." Skoðun 31.5.2024 14:45
Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Hvort má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson! þú ert prófessor við Háskóla Íslands, doktor í heimspeki með gráðu í Rússlandsfræðum og hefur göfug stefnumið samkvæmt skilgreiningu ritstjórnar Vísindavefsins: Skoðun 31.5.2024 14:31
Persónan Katrín Jakobsdóttir „Ég vil alltaf bæta mig,“ svaraði Katrín auðmjúk þegar ég spurði hana hvernig henni hafi gengið í lokaprófunum. Þarna stóðum við fyrir framan kennslustofurnar í Menntaskólanum við Sund með vitnisburðinn í höndunum Skoðun 31.5.2024 14:16
Þjóðaröryggi Fjarskiptastrengina þrjá í eigu Farice þarf að vernda, vegna þjóðaröryggis. Öll viljum við hafa hraða, örugga og góða tengingu við umheiminn. Forsætisráðherra er formaður þjóðaröryggisráðs. Skoðun 31.5.2024 14:01
Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Alþjóðlegi tóbakslausi dagurinn er 31. maí og hefur hann verið haldinn allt frá 1987 af aðildarríkjum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Tilgangurinn er að minna á skaðsemi reykinga og annarar tóbaks- og nikótínnotkunar á fólk, almannaheilbrigði, samfélög og umhverfið í heild sinni. Skoðun 31.5.2024 14:01
Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Varðandi afstöðu míns forsetaframbjóðanda Katrínar Jakobsdóttur til aðildar Íslands að Atlantshafsbandalaginu og fram kom í kappræðum á Stöð 2 í gærkvöldi þá er það dæmi um mál þar sem okkur greinir á í grundvallaratriði. Skoðun 31.5.2024 13:45
„Svona er á síld“ Ekki er laust við að einhverjir hafi farið fullmikinn að undanförnu í glósum og glefsum vegna forsetakosninga, sumir jafnvel offari, sem er miður. En það er eins og gengur, pólitíkin er grimmt sport, skoðanir skiptar, mannskepnan misjöfn og kurteisi ekki öllum í blóð borin. Skoðun 31.5.2024 13:30
Aldrei hitta hetjurnar þínar Er þekkt orðatiltæki sem segir manni að leita ekki persónulegra kynna við þá sem maður hefur litið upp til og/eða hefur mikið dálæti á úr fjarska eða í gegnum miðla. Skoðun 31.5.2024 13:16
Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Undanfarin ár hef ég unnið við að stúdera, þróa og aðstoða fólk við að velja leiðir til að stuðla að jafnrétti og inngildingu. Skoðun 31.5.2024 13:01